mánudagur, mars 31, 2008

Greenstarck

Ég er að fikta í iMove. Tilraun með klipp og tónlist.
Ég er bæði hrifin af grænum lit og tónlist Bachs....

föstudagur, mars 21, 2008

Föstudagurinn langi.


Tilraun
Originally uploaded by melong.

Við Guðmundur erum hér í rólegheitunum á Selfossi, eins og vera ber á þessum degi.
Það hefur verið mikið að gera hjá mér í vetur og því hefur dregið verulega úr bloggfærslum. En það er allt í lagi. Því að bloggið er ekki forgangur í lífinu. Ekki hefur mér orðið mikið úr verki í fríinu. Kannski of lítið að gera eða of mikið á dagskránni.

föstudagur, mars 14, 2008

Herra Gísli er orðinn fimm ára !!


gislifimmara
Originally uploaded by melong.

Stór áfangi í hans lífi... búinn að bíða lengi eftir því að "stóri febrúar" kláraði sig....

laugardagur, mars 08, 2008

Afmælisboð hjá Gísla í dag


Noah´s-ark
Originally uploaded by melong.

Systursonur minn, Gísli , varð fimm ára fimmtudaginn, 6. mars.
Í dag er svo afmælisboð.
Við erum að gera okkur tilbúin til að fara að drífa okkur að drífa okkur að leggja af stað.