miðvikudagur, desember 31, 2008

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla.

Ég verð undir Eyjafjöllum í kvöld, það er alveg pottþétt !

Nancy Wilson - What Are You Doing New Year's Eve

föstudagur, desember 26, 2008

miðvikudagur, desember 17, 2008

Halldór via Einar Már

Halldór Laxness,
Kristnihaldi undir jökli:

“Spurt er: Hvað er hraðfrystihús?
Og svarað: „Það eru íslensk fyrirtæki. Spaugararnir reisa þau fyrir styrk
frá ríkinu, síðan fá þeir styrk af ríkinu til að reka þau, þvínæst láta þeir
ríkið borga allar skuldir en verða seinast gjaldþrota og láta ríkið bera
gjaldþrotið. Ef svo slysalega vill til að einhverntíma kemur eyrir í kassann
þá fara þessir grínistar út að skemmta sér”

föstudagur, desember 05, 2008

Alger snilld !

Prop 8 - The Musical starring Jack Black, John C. Reilly, and many more... from FOD Team, Jack Black, Craig Robinson, John C Reilly, and Rashida Jones.flv

miðvikudagur, desember 03, 2008

dECORATIon poem


dECORATIon
Originally uploaded by melong.

iceberg
agúrkur
engifer
1 appelsínusafi
appelsínur
1-2 teg grænt. td laukur
Sódavatn max4 x 2 l
kapers
dömubindi
ólívur
kæfa
heimilisbrauð
orkubrauð
léttmjólk

ca 3692 kr.

þriðjudagur, desember 02, 2008

Magnús Pétursson langafi


Magnús Péturssonlangafi
Originally uploaded by melong.

Þessi maður var alltaf á hjóli. Hann var með kartöflugarð neðst við Njarðargötu, uþb við stóru gatnamótin sem nú eru. Ég hugsa stundum til hans þegar ég fer um þau. Ég man einu sinni eftir að hafa komið þangað þegar ég var lítil en hef ekki hugmynd um það hvenær það var.


Það er svo fyndið með hana Lukku mína að þegar hún vælir mikið í mér eftir athygli að þá hljómar þetta eins og "mamma" ! Mjög skondið. Kannski ekki út í hött að mamma er alþjóðlegt orð. Bæði menn og dýr geta myndað það. Í það minnsta sum dýr.....